Afrískur pottréttur
Dásamlegur grænmetis- og baunapottréttur sem gleður bragðlauka og þarmaflóruna. Þessi réttur er vegan.
Hráefni
- 2 msk Olía
- 1 stk Laukur Gulur eða rauður
- 1/2 stk Blómkál 1/2-1 stk
- 1 stk Paprika
- 4 stk Gulrætur
- 70 g Tómatpúrra
- 1 dós Tómatar í dós
- 2 dósir Nýrnabaunir
- 1 dl Vatn
- 1 dós Kókosmjólk
- 2 tsk Karrý
- 2 tsk Túrmerik
- 1 stk Grænmetisteningur
- 1/2 tsk Kanill
- 1 dl Döðlur Saxaðar
- 1/2 tsk Salt
Leiðbeiningar
- Laukurinn skorinn í þunnar sneiðar
- Olía sett í pott sem rúmar öll hráefnin og er laukurinn steiktur á miðlungshita
- Á meðan er annað grænmeti skorið niður, blómkál í bita og paprika og gulrætur í þunnar sneiðar
- Þegar laukurinn er orðinn vel mjúkur er tómatpúrru, karrý, túrmerik og kanil bætt saman við og hrært vel saman
- Næst er grænmetinu bætt við og blandað vel saman þannig kryddblandan þekur allt grænmetið
- Næst eru tómatar í dós, kókosmjólk, vatni og grænmetisteningi bætt saman við og hrært vel saman
- Nýrnabaunir skolaðar og bætt saman við ásamt döðlunum
- Leyft að malla í a.m.k. 30 mín, ef tími gefst er gott að leyfa þessu að malla lengur
- Í lokinn að smakka til að bæta við salti eftir smekk
- Borið fram með hrísgrjónum og salati