Laukurinn skorinn í þunnar sneiðar
Olía sett í pott sem rúmar öll hráefnin og er laukurinn steiktur á miðlungshita
Á meðan er annað grænmeti skorið niður, blómkál í bita og paprika og gulrætur í þunnar sneiðar
Þegar laukurinn er orðinn vel mjúkur er tómatpúrru, karrý, túrmerik og kanil bætt saman við og hrært vel saman
Næst er grænmetinu bætt við og blandað vel saman þannig kryddblandan þekur allt grænmetið
Næst eru tómatar í dós, kókosmjólk, vatni og grænmetisteningi bætt saman við og hrært vel saman
Nýrnabaunir skolaðar og bætt saman við ásamt döðlunum
Leyft að malla í a.m.k. 30 mín, ef tími gefst er gott að leyfa þessu að malla lengur
Í lokinn að smakka til að bæta við salti eftir smekk
Borið fram með hrísgrjónum og salati