Ristaðar möndlur
Ilmurinn af ristuðum möndlum er eitt af því sem kemur okkur í mikið jólaskap. Möndlur eru ekki bara bragðgóðar, heldur innihalda þær mikið af næringarefnum. Þær eru próteinríkar, innihalda trefjar, E-vítamín, B7-vítamín, kalk, fosfór, magnesíum, kopar, flavonoid o.fl.
Hráefni
- 1 ½ bollar Möndlur Með hýði = Meiri trefjar
- 1 stk Eggjahvíta
- 1 msk Kalt vatn
- 1 msk Hunang/sykur/púðursykur Má sleppa
- 1 msk Kanill
- 1 msk Vanilludropar eða möndludropar
- ½ tsk Sjávarsalt
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 120°C
- Hrærið saman í skál eggjahvítu og vatni þar til verður að froðu
- Bætið kryddum, hunangi/sykri út í skálina ásamt möndlunum
- Látið blönduna þekja allar möndlurnar og hellið blöndunni á bökunarplötu með bökunarpappír
- Setjið inn í heitan ofninn og bakið í um 1 klst. Ath hrærið í möndlunum 3-4x á meðan bökunartímanum stendur. Leyfið möndlunum að kólna áður en þær eru bornar fram eða settar í krukku