Starfsemi mannslíkamans er flókin og margþætt og þarfnast líkaminn margra ólíkra næringarefna til að viðhalda þeirri starfsemi. Þessi mismunandi næringarefni fáum við úr fæðunni og skiptast þau annars vegar í orkuefni sem eru í formi próteins, fitu og kolvetna og hins vegar í vítamín, stein- og snefilefni.
Þarmaflóran okkar verður fyrir áhrifum frá umhverfinu vegna þess að meltingarvegur kemst í snertingu við ytra umhverfi líkt og húð og lungu. Mataræði er einn af lykilþáttunum sem hafa áhrif á samsetningu örvera í þörmunum og hjálpa trefjar í matvælum til við að viðhalda jákvæðu og fjölbreyttu samfélagi þeirra í þörmunum.
Það sem við borðum frá degi til dags hefur áhrif á örverurnar í meltingarvegi okkar en þær nærast á þeirri fæðu sem við neytum. Það að velja fjölbreytt og trefjaríkt fæði hefur jákvæð áhrif á hvaða örverur dafna best og kemur um leið í veg fyrir röskun á örveruflóru. Besta leiðin til að viðhalda heilbrigðri þarmaflóru er að borða fjölbreytt úrval af ferskum, heilum fæðutegundum, aðallega úr jurtaríkinu.
The gut health doctor hefur hún sett fram þessi 6 ráð sem gott er að tileinka sér fyrir heilbrigða þarmaflóru:
- Borðaðu aðallega plöntur – Byggðu máltíðir þínar og snarl að mestu á plöntum, allt frá grænmeti og belgjurta til hneta og fræja.
- Veldu fjölbreytt matvæli – Veldu fjölbreytt plöntumatvæli og mismunandi liti. Veldu til að mynda heilkorn, ávexti, grænmeti, hnetur og fræ, belgjurtir, kryddjurtir og krydd.
- Veldu heil óunnin matvæli – Veldu heil plöntumatvæli sem eru lítið unnin. Þetta gefur þér bæði meira af næringarefnum og dregur á sama tíma úr matarsóun.
- Bættu við í stað þess að taka út – Gleymdu megrunarkúrum, í staðinn skaltu einblína á það sem þú vilt bæta við inn í mataræðið þitt, í stað þess að vera alltaf að taka út. Það getur umbreytt sambandi þínu við mat, sem er öflugra en margir halda.
- Staldraðu við og njóttu – Ertu vanur/vön að borða við skrifborðið þitt eða grípa bita á milli húsverka? Reyndu að gefa þér tíma til að sitja og virkilega njóta matarins.
- Ræktaðu sambönd – Reyndu að borða með vinum, fjölskyldu eða þeim sem eru í kringum þig hverju sinni. Líttu á hverja máltíð sem tækifæri til að deila, tengjast og læra.
Grein skrifuð af Guðrúnu Nönnu Egilsdóttur, meistaranema í næringarfræði við Háskóla Íslands