Heimagerð salsasósa
Þessi heimagerða salsasósa er rosalega bragðgóð og passar mjög vel með nachosi og rífur svolítið í. Hún hefur slegið í gegn í veislum hjá okkur og er alltaf jafn vinsæl.Salsasósan er best ef hún fær að brjóta sig í a.m.k. 1 klukkustund eða lengur áður en hún er borin fram. Tilvalið er að gera hana daginn áður.
Búnaður
- 1 Matvinnsluvél eða blandari
Hráefni
- 1 dós Niðursoðnir tómatar Niðursoðnir kirsuberjatómatar eru sérstaklega góðir í þessa uppskrift
- 2 msk Tómatpúrra
- 1-2 stk Hvítlauksrif
- 1 handfylli Ferskt kóríander
- 2 msk Jalepeno úr krukku Minna eða meira eftir smekk
- 1,5 msk Hvítvínsedik
- 1/2 stk Lítill rauðlaukur Eða 1/4 stór rauðlaukur
- 1/2 tsk Pipar
- 1/2 tsk Salt
- 1 tsk Sykur
- 1/2 stk Lime safi úr 1/2 lime, ef vill
Leiðbeiningar
- Skerið laukinn í grófa bita og setjið hann ásamt öðrum hráefnum í matvinnsluvél eða góðan blandara og blandið þar til allt er vel blandað saman
- Kryddið til með salti og pipar
- Geymið í loftþéttu íláti í kæli og leyfið að brjóta sig aðeins áður en er borið fram með nachosi eða í taco veisluna