Þennan ofnbakaða hafragraut er tilvalið að gera um helgar til að njóta og ef það er afgangur að eiga fyrir næstu daga. Þessi uppskrift er í algjöru uppáhaldi hjá okkur og er gerður reglulega á okkar heimilum.
Takið miðlungsstórt eldfast mót og kveikið á ofninum á blæstri við 180°C
Skerið niður epli í teninga og setjið neðst í eldfasta mótið. Næst eru frosnum bláberjum bætt ofan á, ásamt söxuðum döðlum og í lokin er kanil stráð yfir.
Í grunni 2 er öllum hráefnunum blandað saman í stóra skál
Öllum hráefnum í grunni 3 er blandað saman í miðlungs stóra skál
Grunni 3 er blandað við grunn 2 í stóru skálina og öllu blandað vel saman
Blöndunni er hellt yfir grunn 1 í eldfasta mótið og dreift vel úr
Dreifið nokkrum s-xuðum pekan hnetum yfir eldfasta mótið og setjið inn í ofn í 180°C í um 30 mínútur.
Mjög gott er að bera þetta fram með grískri jógúrt eða skyri.