3,5dlGlúteinlaust hveitiEf þurfa ekki að vera glúteinlausar má nota venjulegt hveiti
2dlBökunarkakó
1dlPúðursykur
1/2tskXanthan gumEf þurfa ekki að vera glúteinlausar má sleppa
1tskVínsteinslyftiduftEf þurfa ekki að vera glúteinlausar má nota annað lyftiduft
65gSmjör
2stkEgg
100gSaxað suðusúkkulaði
90-100gPekanhnetur
Hnetusmjörsfylling
1,5dlHnetusmjör
1 stkEgg
1mskSýróp
Leiðbeiningar
Kveikið á ofninum á 175°C blástur
Skrælið eplin og skerið niður í minni bita. Setjið eplabitana í pott ásamt döðlunum og smá vatni, gott að miða við að vatnið nái yfir um helming þess sem er í pottinum þannig að smá epli standi upp úr. Sjóðið og hrærið þar til eplin verða mjúk. Slökkvið þá undir pottinum.
Skolið svörtu baunirnar vel í sigti. Blandið svörtu baununum, eplunum og döðlunum ásamt olíu saman í pottinn og maukið með töfrasprota eða setjið í blandara og maukið saman.
Öll þurrefni eru sett saman í skál og blandað vandlega saman við bauna, epla og döðlumaukið. Bætið söxuðu súkkulaði út í og blandið saman við.
Finnið form, gott er að nota ferkantað form. Klæðið formið með bökunarpappír. Setjið 2/3 af deiginu í formið.
Blandið öllum hráefnunum í hnetusmjörsblönduna saman í skál og blandið vandlega saman. Eðlilegt er að blandan verði mjög þykk. Gott er að forma hnetusmjörsblönduna með höndunum eins og þunnar sneiðar og raða ofan á brownie deigið. Saxið og stráið pekanhnetum yfir hnetusmjörsblönduna og næst restina af brownie deiginu yfir.
Setjið inn í miðjan ofninn og bakið við 175°C í 12-15 mínútur
Svo er bara að njóta með t.d. ís, rjóma, vanilluskyri eða bara ein og sér