Tacoveislur geta verið algjört partý fyrir bragðlaukana og þarmaflóruna. Hægt er að leika sér með meðlæti og hráefni.En þetta kjúklingabaunataco með mangósalsa, guacamole og pikkluðum rauðlauk er ótrúlega bragðgott.
3-4mskVegan majónes eða Japanskt majones (ekki vegan)
1tskSambal oleik mauk eða annað chilli mauk Má sleppa
Nachos ef vill
Mangó salsa
5-7stkKirsuberjatómatar
1/4stkRauðlaukur
1HandfylliKóríander
1/2stkSafi úr lime
1/2stkMangó
1/4stkAgúrka
klípaSalt
Guacamole
2stkAvocado
1/2stkLime safi
1HandfylliKóríander
1stkHvítlauksrif eða hvítlauksduft
klípaSalt
Pikklaður rauðlaukur
1stkRauðlaukur
1/2 bolliEplaedik
1mskSykur
1,5tsksalt
1bolliHeitt vatn
Leiðbeiningar
Pikklaður rauðlaukur (hægt að gera klukkutíma áður eða daginn áður)
Skerið rauðlaukinn mjög þunnt og setjið í hreina lokanlega krukku
Blandið saman öðrum hráefnum: eplaedik, sykur, salt og heitt vatn í skál og leysið upp sykurinn
Hellið edikblöndunni yfir rauðlaukinn í krukkunni og leyfið að standa í opinni krukku í um klukkustund
Eftir klukkustund er hægt að nota rauðlaukinn beint eða loka krukkunni og geyma í kæli í allt að 3 vikur
Mangó salsa
Skerið tómata, mangó og gúrku í litla bita og setjið í skál
Saxið rauðlaik og kóríander smátt og bætið í skálina
Kreistið safa úr lime og saltið
Hrærið saman og smakkið til
Guacamole
Hægt er að gera þetta guacamole á tvennskonar vegu.
Ef þið viljið hafa það gróft er gott að stappa avocadoið eða merja í morteli, saxa kóríanderinn og saxa hvítlaukinn smátt, kreista limesafa yfir, krydda til með salti og hræra vel saman
Ef þið viljið hafa það silkimjúkt er hægt að setja öll hráefnin í matvinnsluvél og blanda þar til það verður silkimjúkt. Þá er einnig hægt að blanda smávegis af ólífuolíu samanvið til að gera enn mýkra.
Kjúklingabauna taco
Hellið úr kjúklingabaunadósunum í sigti og skolið og þerrið
Hitið pönnu á meðalhita og setjið olíu á pönnuna og kjúklingabaunirnar út á pönnuna. Bætið kryddum út í og hrærið
Hitið kjúklingabaunirnar í um 4-5 mínútur eða þar til þær eru orðnar stökkar og setjið svo í skál
Ef þið viljið chilli majónes með, hrærið saman japönsku majónesi og sambal oleik mauki saman. Hægt er að nota minna eða meira af chilli mauki eftir smekk. Annars er hægt að nota aðeins japanskt majónes.
Hitið tortillur eða taco skeljar í um 1-2 mínútur í heitum ofni
Setjið guacamole, mangósalsa, kjúklingabaunir, pikklaðan rauðlauk, chili majónes og nachos á borð og hver raðar í sína tortillu eða skel eftir smekk